|
|
8. KAFLI Um vinnu- og hlífðarföt. |
|
|
|
Vinnu- og hlífðarföt. |
|
|
|
Við fastráðningu leggur vinnuveitandi bifreiðastjórum
til einkennisfatnað, það er jakki, tvennar buxur, tvennar
skyrtur og bindi árlega, svo og úlpu á þriggja ára fresti,
án endurgjalds, þó ekki fyrstu þrjá mánuðina. Þegar
einkennisfatnaður er afhentur, skal kvitta fyrir móttöku
fatnaðarins.
|
|
|
|
Bifreiðastjóra er skylt að nota fatnaðinn við vinnu sína.
|
|
|
|
Jafnframt skal bifreiðastjórum, öðrum
en þeim sem að staðaldri stunda akstur innanbæjar,
lagður til kuldagalli við fastráðningu.
Hlífðarfatnaðurinn er eign vinnuveitenda og
skal bifreiðastjóri sjá til þess að
hann sé til staðar í bifreiðinni þegar
á þarf að halda. Gallinn skal endurnýjaður
eftir þörfum en þó eigi sjaldnar en
á þriggja ára fresti.
|
|
|
|
Hafi bifreiðastjóri ekki fengið tilskilinn
fatnað, þegar hann hefur unnið þrjá
mánuði hjá vinnuveitanda, eða reglulega
á 12 mánaða fresti, skal greiða honum
mánaðarlega 3.000 kr. frá ráðningardegi
þar til hann fær fötin. Greiðsla þessi
miðast við vísitöluneysluverðs sem
var í júlí 2001 og breytist árlega
skv. þeirri vísitölu.
|
|
|
|
Vinnuveitanda er skylt að greiða fyrir viðgerðir,
þrif og hreinsun einkennis- og hlífðarfatnaðar í þeim tilfellum
að orðið hafa óhöpp við vinnu (bilanir, slys, olíuóhöpp og
fleira).
|
|
|
|
Fötin eru eign vinnuveitanda og óheimilt er að nota þau
nema við störf hjá honum.
|
|
|
|
Bifreiðastjóra ber að standa skil á notuðum fatnaði.
|
|
|
|
Verði starfsmaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum
fatnaði og munum við vinnu svo sem úrum, gleraugum og svo
framvegis skal það bætt samkvæmt mati. Náist ekki samkomulag,
skal farið samkvæmt mati eins fulltrúa frá hvorum aðila hlutaðeigandi
kjarasamnings.
|
|
|
|
Slík tjón verða einungis bætt, ef þau verða við vinnu.
Eigi skal bæta slíkt tjón, ef það verður sannanlega vegna
gáleysis eða hirðuleysis.
|
|
|