Dansk Svenska English Barðsneshlaup á Facebook @ infó   s&s  
Aftur á forsíðu.
Vertu með í Barðsneshlaupi!
... BARÐSNESHLAUP
... HELLISFJARÐARHLAUP
... SKRÁNING
... BESTU TÍIMAR
... FRÉTTIR
... SÖGUR
... UMSAGNIR
... AÐSTANDENDUR
... SPURT & SVARAÐ
... MYNDIR
... VÍDJÓ
... PODCAST
BARÐSNESBÍÓ
Smelltu til að horfa á viðtal
Viðtal við Þorberg Barðsneskóng
STYRKTARAÐILAR
Fjölmargir koma að skipulagningu Barðsneshlaupsins. Hér eru nefndir helstu styrktaraðilarnir:
Íslandsbanki
Rúmfatalagerinn
SÚN Fjarðasport
Neistaflug
Ölgerðin
Björgunarsveitin Gerpir
Hlaup.is
Sundlaugin í Neskaupstað
SAGAN


Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð og Hellisfjörð fór í eyði fyrir og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes, Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur, Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.

Í Viðfirði var áður höfuðból og mjög reimt. Þar stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út í Viðfjörð til 1949 en þá var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar og farþegar ferjaðir með bát frá Viðfirði til Neskaupstaðar.
Barðsnessögur

Hér eru nokkrar sögur hlaupara úr Barðsneshlaupinu. Barðsneshlaup hefur verið hlaupið í meira en áratug og því ekki að undra að menn og konur hafi frá einu og öðru skemmtilegu að segja, í óbundnu sem bundnu máli.

Þorlákur Axel Jónsson
„Við hlauparar ræddum það á eftir að þegar maður byrjar að villast, þá heldur maður áfram að villast og það var það sem gerðist. Fyrst lenti ég inni í girðingu þar sem var ekki bara ein stika heldur tugir eða hundruð slíkra, lenti á rafmagnsgirðingu og vippaði mér yfir hana, fann stikur á ný og stefndi "fram í Norðfjarðarsveit", sem var það eina sem ég vissi um framhaldið.“ Lesa

Kristinn Pétursson
„Minn helsti bömmer úr fyrra hlaupinu var einmitt þegar ég var kominn upp á gjötuhjalla Hellisfjarðarmúlans og sá yfir Norðfjörðinn yfir til Neskaupstaðar og fannst að nú væri stutt eftir. En það er nú öðru nær, því fyrst er að hlaupa niður fjallið, sem er erfiðasti leggur leiðarinnar að mínu mati, inn fjörðinn, yfir Norðfjarðarána og svo upp á veg sem leið liggur inn í bæinn. Þetta gerir um 10 km sem eins gott er að gera ráð fyrir!“ Lesa

Trausti Valdimarsson
„Við Bjartmar náðum fljótlega forustu í hlaupinu, en sáum alltaf einhvern nokkur hundruð metra fyrir aftan. Upp Götuhjallann þreyttist ég en Bjartmar var léttur að vanda og náði góðu forskoti. Á drykkjarstöðinni hæst uppi á Hellisfjarðarmúla birtist ungur piltur skyndilega - 17 ára fótboltastrákur; Þorbergur Jónsson.“ Lesa

Hópur hlaupara frá Hreyfingu
„Siglingin yfir að Barðsnesi með björgunarbátnum Hafbjörginni var ævintýri líkust og einhver skemmtilegasta og óvanalegasta aðkoma að hlaupi í okkar minnum. Báturinn var of stór til að geta lagst að bryggju, svo ferja varð mannskapinn á minni bát í land og var það ekki til að draga úr ævintýramennskunni. Á bryggjunni tók Ingólfur hlaupafélagi og húsráðandi á Barðsnesi á móti hópnum með miklum myndarbrag og bauð öllum heim í hús þar sem menn gerðu sig klára.“ Lesa
TÍMARNIR
Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES OFF ROAD RUN
The Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur the first Saturday in August. Read more
FRÉTTIR
7. ágúst 2007
Nýtt met í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!

Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið þátt; 28 hlauparar voru skráðir í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes undir þremur tímum. Meira
SÖGUR ÚR HLAUPINU
„Sjö km inn í Viðfjörð, sex inn í Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann og þaðan hellingur í bæinn. Svona skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla leið.“ Lesa
UMSAGNIR
„Það voru þreyttir en ánægðir menn sem báru saman bækur sínar í heitu pottunum að hlaupi loknu. Var það almennur rómur okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við hefðum tekið þátt í.“ Meira

eXTReMe Tracker
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR


Gisting Tvö hótel eru í Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði með ágætri þjónustu. Hótel Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan afslátt af gistingu. Meira
Vefhönnun & umsjón: MÍNERVA - miðlun og útgáfa | vefstjóri: kristinn@minervamidlun.is
Vertu vinur! Vertu vinur Barðsneshlaupsins á Facebook