Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð
og Hellisfjörð fór í eyði fyrir
og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes,
Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur,
Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður
og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur
hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.
Í Viðfirði var áður
höfuðból og mjög reimt. Þar
stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón
Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin
til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út
í Viðfjörð til 1949 en þá
var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar
og farþegar ferjaðir með bát frá
Viðfirði til Neskaupstaðar.
Hellisfjarðarhlaup
2011
Hellisfjarðarhlaup er 13 km víðavangshlaup
um fjölbreytt land, móa, mýrar, fjörur
og tún. Hlaupið hefst innst í Hellisfirði
og er í raun seinni helmingurinn af Barðsneshlaupinu.
Hlaupaleiðin er merkt stikum og símastaurum.
Start - mark
Hlaupið hefst innst í Hellisfirði, en hlauparar
eru ferjaðir frá Neskaupstað (sigling innifalin
í þátttökugjaldi). Hlaupinu lýkur
á torginu neðan við sundlaugina í Neskaupstað,
en frítt er í sund fyrir þátttakendur
eftir hlaupið.
HVAÐ?
Hellisfjarðarhlaup
HVAR?
Neskaupstaður
HVENÆR?
30. júlí
2011
BÁTUR?
Frá Bæjarbryggju
kl. 10
START?
Í Hellisfirði
kl. 11
LENGD?
13 km
HVERNIG?
Hlaupa / ganga
KOSTAR?
Vefskráning til
27. júlí: 3.500 kr.
Leiðin Hlaupið hefst innst í Hellisfirði. Hlaupið
er út fyrir Hellisfjarðarmúla yfir Götuhjallann
í 197m hæð yfir sjó. Þaðan
sér vítt yfir og m.a. endamarkið sjálft
handan fjarðarins. Þá er farið inn í
Norðfjarðarsveit, yfir Norðfjarðará á
vaði við Grænanes og út í kaupstað.
Brautin Mesta hækkun er þegar hlaupið/gengið
er upp Götuhjalla, eða 197 m hækkun. Óvíða
eggjagrjót eða hættur vegna bratta. Í
botnum fjarðanna eru straumlitlar ár með malarbotni.
Viðfjarðará er brúuð. Hinar þarf
að vaða. Norðfjarðará getur orðið
óvæð og er þá ferjað yfir.
Drykkjarstöðvar Vatn og íþróttadrykkir eru veittir á
tveimur stöðum: Á Götuhjalla og í
Norðfjarðarsveit. Auk þessa er nóg af fjallalækjum
á leiðinni og því gott að hafa ílát
meðferðis til að drekka úr.
Skráning í hlaup
Skráning í Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup
fer fram á Hlaup.is
Innifalið í þátttökugjaldi
Innifalið í skráningargjaldinu eru bátseferðir
að Barðsnesi og í Hellisfjörð (aðra
leiðina, þú átt helst að hlaupa
landleiðina til baka!), vatn og íþróttadrykkir
á 4 drykkjarstöðvum, létt hressing við
markið, verðlaunapeningur og önnur verðlaun
og frítt í sund + almenn ánægja og
skemmtilegheit.
Bolir eru ekki innifaldir í verði, en hægt
að kaupa fyrir kr. 2000 aukalega. Bolirnir eru úr
vönduðu efni, langerma, rauðir, merktir Barðsneshlaupi
og 66N.
Á breiðmyndinni hér
fyrir ofan er horft frá Barðsnesi yfir til
fjarðanna þriggja sem hlaupnir eru. [STÆKKA
MYND]
TÍMARNIR
Tímar í Barðsnes-
og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES
OFF ROAD RUN
The
Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race
in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur
the first Saturday in August. Read
more
FRÉTTIR
7.
ágúst 2007 Nýtt met
í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!
Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin
laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu
veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið
þátt; 28 hlauparar voru skráðir
í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í
Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes
undir þremur tímum. Meira
SÖGUR
ÚR HLAUPINU
Sjö
km inn í Viðfjörð, sex inn í
Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann
og þaðan hellingur í bæinn. Svona
skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla
hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla
leið. Lesa
UMSAGNIR
Það voru þreyttir
en ánægðir menn sem báru saman
bækur sínar í heitu pottunum að
hlaupi loknu. Var það almennur rómur
okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup
í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert
skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við
hefðum tekið þátt í.
Meira
HAGNÝTAR
UPPLÝSINGAR
Gisting Tvö hótel eru í
Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði
með ágætri þjónustu. Hótel
Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan
afslátt af gistingu. Meira