Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð
og Hellisfjörð fór í eyði fyrir
og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes,
Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur,
Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður
og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur
hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.
Í Viðfirði var áður
höfuðból og mjög reimt. Þar
stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón
Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin
til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út
í Viðfjörð til 1949 en þá
var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar
og farþegar ferjaðir með bát frá
Viðfirði til Neskaupstaðar.
Barðsnesbíó
BARÐSNES 11:34 mín.
> Fyrstu 11 mínútur heimildakvikmyndarinnar
BARÐSNES eftir Kristin Pétursson um Barðsneshlaupið
austast á Austfjörðum; fjöllin, fjöruna
og fólkið sem hleypur.
Hér er sagt frá Neskaupstað, Barðsnesi
og Norðfirði, siglt út í Barðsnes
og spjallað við Ingólf Sveinsson, upphafsmann
Barðsneshlaupsins.
Kvikmyndað var sumarið 2007 (c) MÍNERVA KVIKMYNDAGERÐ
Tímar í Barðsnes-
og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES
OFF ROAD RUN
The
Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race
in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur
the first Saturday in August. Read
more
FRÉTTIR
7.
ágúst 2007 Nýtt met
í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!
Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin
laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu
veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið
þátt; 28 hlauparar voru skráðir
í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í
Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes
undir þremur tímum. Meira
SÖGUR
ÚR HLAUPINU
Sjö
km inn í Viðfjörð, sex inn í
Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann
og þaðan hellingur í bæinn. Svona
skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla
hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla
leið. Lesa
UMSAGNIR
Það voru þreyttir
en ánægðir menn sem báru saman
bækur sínar í heitu pottunum að
hlaupi loknu. Var það almennur rómur
okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup
í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert
skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við
hefðum tekið þátt í.
Meira
HAGNÝTAR
UPPLÝSINGAR
Gisting Tvö hótel eru í
Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði
með ágætri þjónustu. Hótel
Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan
afslátt af gistingu. Meira