Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð
og Hellisfjörð fór í eyði fyrir
og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes,
Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur,
Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður
og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur
hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.
Í Viðfirði var áður
höfuðból og mjög reimt. Þar
stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón
Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin
til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út
í Viðfjörð til 1949 en þá
var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar
og farþegar ferjaðir með bát frá
Viðfirði til Neskaupstaðar.
Öðruvísi
upplifun
af þremur fjörðum
eftir Trausta Valdimarsson
Þetta hlaup var öðruvísi
en öll hin! Trausti hefur hlaupið Barðsnesið
a.m.k. fimm sinnum.
Haustið 1999 fór ég að leysa af í
nokkrar vikur á sjúkrahúsinu í Neskaupstað.
Ég hafði ekki komið á Austfirði síðan
1985, þegar við ókum hringveginn. Aldrei áður
komið á Neskaupstað. Ótrúleg náttúrufegurð,
hvílík fjöll. Hitti Ingólf Sveinsson,
hlaupara og geðlækni með meiru, sem lýsti
fyrir mér Barðsneshlaupinu. Og ég lét
mig dreyma ...
Laugavegurinn 2000 gekk ekki sem skyldi, rigndi í kaf
og við urðum mörg að snúa við -
hvorki nógu þreytt né hamingjusöm.
En ég var búinn að stíla upp á
Barðsneshlaupið laugardaginn 5. ágúst
"til vara". Og þar var stærri séns
að vinna! Var vikuna fyrir verslunarmannahelgina í
afleysingum á Neskaupstað og hljóp þessa
fallegu leið oft í huganum (góðar myndir
á Hlaupasíðunni -(úrslit )). Daginn
fyrir sjálfa keppnina varð mér þó
ljóst að samkeppnin um fyrstu sætin gæti
orðið of hörð. Bjartmar Birgisson og ýmsir
fleiri sterkir hlauparar voru væntanlegir.
Laugardaginn 5. ágúst kl 08.30 söfnuðumst
við saman á höfninni í Neskaupstað.
Níu karlar og fjórar konur mættu til leiks
í sjálft Barðsneshlaupið. "Minni"
hetjur lögðu seinna sama dag af stað í 10
eða 6 km hlaup. Veður var stillt, næstum alveg
lygnt og 10-16 stiga hiti. Austfjarðaþokan spillti
útsýni fyrst í stað. Farið var
á gúmmíbát 8 mínútna
siglingu yfir Norðfjarðarflóann og hoppað
í land við Barðsnes, sem fór í
eyði 1955. Fjöldi manns tók á móti
okkur en þessa helgi var ættarmót á
bænum hjá afkomendum Sigríðar Þórðardóttur
og Sveins Árnasonar, foreldrum Ingólfs Sveinssonar.
Þau hófu búskap á Barðsnesi árið
1923 og eingnuðust átta börn. Við fengum
hressandi drykki og góða hvatningu.
Þetta hlaup var öðruvísi en öll hin!
Frá Barðsnesi var hlaupið meðfram ströndinni
eins og land liggur um hina þrjá firði sem
ganga inn frá Norðfjarðarflóa: Viðfjörð,
Hellisfjörð og Norðfjörð. Ca. 27 km um
mjög fjölbreytt land. Alvöru víðavangshlaup
yfir móa og mela og um þröngar og krókóttar
kinda- og hestagötur. Gott fyrir fótvissa en þurfti
að hafa einbeitinguna í lagi. Lítið um
brekkur nema Götuhjalli upp frá Hellisfirði
um 200 m hækkun. Í botni fjarðanna eru ár,
sú fyrsta með hengibrú en þær
2 síðustu þarf að vaða.
Við Bjartmar náðum fljótlega forustu í
hlaupinu, en sáum alltaf einhvern nokkur hundruð
metra fyrir aftan. Upp Götuhjallann þreyttist ég
en Bjartmar var léttur að vanda og náði
góðu forskoti. Á drykkjarstöðinni
hæst uppi á Hellisfjarðarmúla birtist
ungur piltur skyndilega - 17 ára fótboltastrákur;
Þorbergur Jónsson. Ég æddi af stað
niður kindagöturnar með vatnsflösku í
hendi en var næstum dottinn (200 m. ansi bratt niður
í sjó) þegar ég reyndi að fá
mér sopa. Þorbergur kom fljótlega í
hælana á mér og ég varð að
hleypa honum framúr. Hann virtist kunna vel við sig
niður einstigið því hann nálgaðist
Bjartmar hratt og náði honum við Norðfjarðarána.
Bjartmar sagðist seinna hafa haldið að ég
væri að koma og hafa misst allan mátt við
að sjá "ókunnugan strák gera grín
að okkur". Þorbergur kom í mark á
nýju og glæsilegu meti; 2:16:20, Bartmar tveim
og ég rúmum fjórum mínútum
seinna. Mikið afrek hjá Þorbergi, sem er mjög
efnilegur íþróttamaður, en ég
frétti seinna að hann taki gjarnan auka sprettæfingar
upp í Norðfjarðarfjöllin eftir fótboltaæfingarnar.
Ekki spillti fyrir gleði heimamanna að Þorbergur
er ættaður frá Barðsnesi. Afi Þorbergs
Jónssonar, Þorbergur Sveinsson er bróðir
Ingólfs Sveinssonar.
Verðlaunaafhendingin var líka eftirminnileg. Neistaflug,
sem er mikil gleðihátíð um verzlunarmannahelgina
á Neskaupstað var í fullum gangi og fjöldi
fólks fylgdist með. Aldrei hefur verið klappað
meira. Og eftir að Þorbergur hafði tekið við
sínum verðlaunabikar fékk ég að
taka á móti enn stærri farandbikar fyrir
sigur í öldungaflokknum - stærsti og fallegasti
bikar sem ég hef augum barið. Ég þarf
því miður að skila honum á Neskaupstað
fyrir næsta Barðsneshlaup 4. ágúst 2001
en ætla að reyna að vinna hann aftur. En ég
vil þó gjarnan fá samkeppni og að fleiri
fái að upplifa þetta frábæra hlaup
kring um Norðfjarðarflóann.
Tilgangurinn með lífinu er að búa til
góðar minningar!
TÍMARNIR
Tímar í Barðsnes-
og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES
OFF ROAD RUN
The
Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race
in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur
the first Saturday in August. Read
more
FRÉTTIR
7.
ágúst 2007 Nýtt met
í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!
Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin
laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu
veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið
þátt; 28 hlauparar voru skráðir
í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í
Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes
undir þremur tímum. Meira
SÖGUR
ÚR HLAUPINU
Sjö
km inn í Viðfjörð, sex inn í
Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann
og þaðan hellingur í bæinn. Svona
skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla
hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla
leið. Lesa
UMSAGNIR
Það voru þreyttir
en ánægðir menn sem báru saman
bækur sínar í heitu pottunum að
hlaupi loknu. Var það almennur rómur
okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup
í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert
skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við
hefðum tekið þátt í.
Meira
HAGNÝTAR
UPPLÝSINGAR
Gisting Tvö hótel eru í
Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði
með ágætri þjónustu. Hótel
Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan
afslátt af gistingu. Meira