sunnudagur, apríl 03, 2005

Hvað er í hjartanu?

Góður vinur minn liggur á sjúkrahúsi og sendi mér skilaboð sem m.a. innihéldu eftirfarandi (vona að hann fyrirgefi mér það að birta þetta svona opinberlega):

"Annars fer ég í hjartasónar í fyrramálið og þá á eitthvað að koma í ljós, kannski sjá þeir Jesú, hann er í hjarta mínu."

Alveg sama á hverju gengur, trúin er sterk og húmorinn í lagi. Vona að þetta lýsi upp ykkar dag, það gerði það hjá mér.