sunnudagur, mars 06, 2005

Við eigum ekki að þegja !

Frá árinu 1996 hafa 40 múslimskar konur verið myrtar svokölluðum heiðursmorðum í Þýskalandi. Morðingjar þeirra voru í öllum tilfellum ættingjar þeirra, oft yngri bræður sem neyddir voru til morðanna af fjölskyldu kvennanna, oft feðrum þeirra. Ástæða þess að þeir eru fengnir til morðanna er sú að þeir fá mun vægari dóm vegna ungs aldurs heldur en t.d. feður þeirra hefðu fengið. Hinir barnungu morðingjar hafa svo verið teknir í dýrðlingatölu af mörgum í samfélagi múslíma í Þýskalandi.

Og hver er ástæða morðanna? Jú hinar myrtu konur bökuðu að áliti fjölskyldu þeirra, fjölskyldunni skömm og niðurlægingu með því að vilja aðlaga sig að því þjóðfélagi sem þau búa í. Til dæmis með því að velja sjálfar hverjum þær giftast o.s.frv. Um eina var sagt: "Hún lifði eins og Þjóðverji!"

Sem dæmi um það hvað það var sem þessar konur vildu flýja, þá þekkist það í múslimahverfum í borgum Þýskalands að hlutverk konunnar er að vera heima og sinna búi og börnum. Það hljómar kannski ekki endilega illa en þegar málið er skoðað betur, þá fá þessar konur aldrei að fara út fyrir hússins dyr, heldur er haldið í einangrun og notaðar sem þrælar.

Í tengslum við trúarbragðaumræðu og einkarekna skóla, spyr ég: "Hvort skyldi vera betra að innræta börnum Kristna trú og kristin gildi og með því standa vörð um þjóðfélag okkar, siði og menningu, eða hefja til vegs og virðingar til jafns við vestræna siði og menningu, trúarbrögð og gildi, þar sem fylgjendur ala á slíkri kvenfyrirlitningu, að réttindi kvenna eru ekki meiri og jafnvel minni en gæludýra?"

Ég tek það fram að ég er ekki á móti múslimum, heldur vil með þessum skrifum mínum vekja athygli á því hvernig komið er fram við þessar konur og er viss um að margir múslimskrar trúar eru mér sammála og vilja ekki að slíkt viðgangist, í það minnsta vona ég það.

VIÐ EIGUM EKKI AÐ ÞEGJA !