föstudagur, janúar 09, 2004

Sýnið biðlund og verslið eldsneyti.

Ég bið gesti síðunnar afsökunar á ,,höltu" útliti hennar, en unnið er að lagfæringum og smávægilegum breytingum.

Bið ég alla um að sýna biðlund. Á meðan þið bíðið, hvet ég alla sem vettlingi geta valdið og eiga bifreið, að sé hún í eldsneytisþörf, að skjótast og versla við Atlantsolíu. Látum þessa samkeppnisfæðingu ekki verða kæfða í krafti stöðu, auðs og valds annara félaga. Við neytendur getum ráðið því hvort samkeppnisumhverfið á eldsneytismarkaðnum breytist.

Verslum við Atlantsolíu. Þeir eru með sjálfsafgreiðslustöð við söluturninn að Kópavogsbraut í Kópavogi.