miðvikudagur, desember 10, 2008

Er Jesús betri en jólasveinninn

Jólasveinninn býr á Norðurpólnum.
Jesús er allsstaðar.

Jólasveinninn ekur um á sleða.
Jesús kemur með vindinum og gengur á vatni.

Jólasveinninn kemur aðeins einu sinni á ári.
Jesús er eilíflega til staðar með hjálp sína.

Jólasveinninn setur nammi í skóinn.
Jesús sér fyrir öllum þörfum þínum.

Jólasveinninn kemur óboðinn niður strompinn.
Jesús stendur við dyrnar og knýr á, ef þú býður honum inn, þá kemur hann inn í hjarta þitt.

Þú verður að standa í biðröð til að hitta jólasveininn.
Allt sem þú þarft að gera er að nefna nafn Jesú, þá stendur hann við hlið þér.

Jólasveinninn leyfir þér að sitja í kjöltu sinni.
Jesús leyfir þér að hvíla í örmum sínum.

Jólasveinninn þekkir ekki nafnið þitt. Allt sem hann getur sagt er, ?Hey litli strákur eða stelpa, hvað heitir þú??
Jesús þekkti nafn þitt á undan þér. Ekki aðeins þekkir hann nafn þitt, heldur líka heimilisfangið þitt. Hann þekkir fortíð þína og framtíð. Hann meira að segja veit hversu mörg höfuðhár þín eru.

Jólasveinninn er með belg sem hristist eins og jarðaberjahlaup.
Jesús er með hjarta sem er fullt af ást og kærleika.

Allt sem jólasveinninn getur boðið er HO HO HO.
Jesús býður heilbrigði, hjálp og von.

Jólasveinninn segir, ?You better not cry?, eða ?eins gott fyrir þig að gráta ekki.?
Jesús segir: ?Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.?

Hjálparar jólasveinsins búa til leikföng til að gefa.
Jesús gefur nýtt líf, hann mætir særðu hjarta, lagar brotin heimili og byggir hallir.

Jólasveinninn fær þig til að hlægja.
Jesús gefur þér gleði sem er styrkur þinn.

Jólasveinninn setur gjafir undir jólatréð.
Jesús gaf þér sjálfan sig og lét líf sitt fyrir þig á krossinum.

Jólasveinninn er ævintýrapersóna.
Jesús er raunverulegur.

Það er augljóst að hér er ekki neitt sem hægt er að bera saman.

Við þurfum að muna um hvað jólin snúast raunverulega um.
Við þurfum að setja Krist aftur í fyrsta sæti jólanna, því hann er ástæða þess að við höldum jól.

Já, Jesús hann er betri, já miklu betri en jólasveininn.

Höfundur ókunnur.

1 Ummæli:

Blogger Sig Saem ritaði:

Þetta er nú meiri rómantíkin.
Siggi Sæm

2:48 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Heim