miðvikudagur, október 15, 2008

Kreppuhúmor

Verðbréfasali var á spjalli við vin sinn. Vinurinn hafði áhyggjur og spurði verðbréfasalann hvernig hann svæfi nú í öllum þessum hremmingum sem nú gengu yfir. Ég sef alveg eins og ungabarn, svaraði verðbréfasalinn. Já er það, sagði vinurinn með undrunartóni. Já, ég vakna á klukkustundarfresti, grátandi og pissublautur.