miðvikudagur, október 29, 2008

Kannski ekki svo slæmt?

Íslendingur átti samtal við vin sinn frá Úganda. Samtalið gekk svona fyrir sig:

"Heyrðu félagi, það er úr vöndu að ráða. Íslenska þjóðin er gjaldþrota! Hvað segirðu, en leiðinlegt að heyra, eigið þið þá ekki fyrir baunum og maís? Jú reyndar eru búðir fullar af mat og enginn vöruskortur. Hvað segirðu, þið eigið þá mat. Það er gott. En eigið þið þá ekki þak yfir höfuðið lengur! Jú við eigum reyndar íbúð eins og flestir og það eru fáir heimilislausir á Íslandi. En hvað segirðu mér þá? Gengur plága yfir landið, eru allir veikir og heilbrigðiskerfið lamað? Nei nei reyndar ekki, við fáum nánast ókeypis læknaþjónustu og erum með ágætt heilbrigðiskerfi. Nú jæja. Það var gott að heyra. En eru þá skólarnir að loka og fá kannski ekki allir tækifæri til að læra að lesa lengur og sérstaklega þá ekki konur. Jú reyndar er 99,9% læsi á Íslandi og menntakerfið er ágætt, margir með háskólagráður og konur ekki síður en karlar. Það er nú gott, en þið verðið þá að passa er að lenda ekki í stríði við nágrannaþjóðir ykkar. Uuuu við erum reyndar ekki með her og teljumst nú frekar friðsæl þjóð. En við þurfum bara að hlusta á bullið og stríðsyfirlýsingarnar í fíflinu honum Gordon Brown. Það er það sem við munum líklega komst næst því að fara í stríð. Ok. Segðu mér nú samt ekki að þið komist ekki í hreint vatn. Við eigum reyndar besta vatn í heimi. Nú, er vegakerfið þá ónýtt? Hérna í Afríku ganga allir eða nota asna og stundum reiðhjól. Það eru líka til strætisvagnar hérna, en þeir eru alltaf yfirfullir. Eru kannski strætóarnir hjá ykkur hættir að ganga? Neeee... Það er verið að ræða um hvort almenningssamgöngur hér eigi að vera ókeypis, en það eru flestallir vegir malbikaðir og næstum allir eru á nýlegum bílum. Eigið þið þá enga peninga til að gera ykkur glaðan dag? Ég meina, þú sagðir að þjóðin væri gjaldþrota. Flestir eiga reyndar einhvern sparnað á bókum þó sumir hafi tapað honum eða hluta hans síðustu daga. Það verður alla vega erfitt að kaupa stærri flatskjái og utanlandsferðunum verður að fækka. Já, ég á kannski einhvern tíma eftir að fara til útlanda, en ég er nú líka frá Úganda. Hefur kannski enginn vinnu og þurfið þið núna öll að betla? Neeeiii...! Atvinnuleysið er um 2% en við verðum að flytja Pólverjana aftur heim og fara sjálf að vinna vinnuna sem þeir unnu. Hmmm... Svo þið hafið peninga, mat, húsaskjól, heilbrigðiskerfi, menntakerfi, búið við frið, eigið nóg hreint vatn og samgöngur eru góðar.

Segðu mér, hvert var vandamálið aftur?"

Höfundur ókunnur