Léttmeti á mánudegi
Gamli presturinn var orðin svo þreyttur á framhjáhalds-játningum sóknarbarna sinna í skriftarstólnum að sunnudag einn hélt hann þrumuræðu yfir þeim og sagði að hann þyldi ekki að heyra orðið framhjáld einu sinni enn, annars myndi hann hætta störfum í sókninni. En gamli presturinn var vinsæll og fólk vildi fyrir alla muni hafa hann áfram svo sóknarformaðurinn í samráði við gamla prestinn lét það boð út ganga að þeir sem vildu skrifta og játa framhjáhald myndu nota setninguna "ég datt á kirkjuveginum" í staðinn. Og allt gekk sinn vanagang þar til gamli presturinn dó. Nýr prestur var auðvitað ráðinn í hans stað og eftir fyrsta daginn í skriftarstólnum orðaði hann það við sóknarformanninn að eitthvað þyrfti að laga gangveginn upp að kirkjunni því fólk segðist sífellt vera að detta. Sóknarformaðurinn fór að flissa, en þá sagði nýji presturinn. "Þú ættir nú ekki að hlæja að þessu, konan þín hefur dottið þrisvar frá áramótum".
6 Ummæli:
Skondinn þessi...!
Kv E
This post has been removed by a blog administrator.
This post has been removed by a blog administrator.
This post has been removed by a blog administrator.
This post has been removed by a blog administrator.
??? ????? ????? ????? ????? ?????
????? ????? ????? ????? ????
Sendu inn athugasemd
<< Heim