föstudagur, júlí 02, 2004

Kærleikurinn

Hvet okkur öll til að gleyma ekki kærleikanum og eiginleikum hans:

Þótt ég talaði tungum manna og engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú, að færa mætti fjöll úr stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn, til þess að verða brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.

Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
I Korintubréf 13.1-7.

Og

Umfram allt hafið brennandi kærleika hver til annars, því að kærleikur hylur fjölda synda. I Pétursbréf 4.8.

Og kæri lesandi,

Drottinn blessi þig og varðveiti þig!
Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur!
Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið!
3 Mósebók 6.24-26