Landssamtök hjólreiðamanna
http://www.islandia.is/lhm
Íslenski fjallahjólaklúbburinn
http://www.mmedia.is/~ifhk
Pósthólf 5193
125 Reykjavík
Reykjavík 15. febrúar 2001
Athugasemdir við göngu- og hjólastíga við mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandavegar
Við hönnun göngu- og hjólreiðastíga
þarf að forðast óþarfa hlykki og krappar beygjur.
Miða þarf við að stígurinn liggi skemmstu leið
milli staða.
Lyfta þarf stígnum upp frá umhverfi sínu
svo ekki liggi og renni á honum yfirborðsvatn eða safnist
þar fyrir klaki. Koma þarf fyrir ræsum við stíginn
þar sem hætta er á að vatn safnist saman.
Undirlag þarf að vera frostþolið og á
stígnum bundið slitlag.
Breidd stígsins þarf að vera 4 metrar, lika á
brúm og í undirgöngum. Svo litið sé til nágrannalanda
þá má gera ráð fyrir því að
í framtíðinni verði leyfð umferð léttra
bifhjóla á stígum sem þessum og því
muni stígnum verða skipt milli bifhjóla, reiðhjóla
og gangandi.
Huga þarf samtímis að greiðum tengingum áfram
til vesturs og til Mosfellsbæjar.
Mikilvægt er að framkvæmdahraði við lagningu
stíga sé í samræmi við framkvæmdahraða
akbrauta svo að ekki skapist hætta og óvissuástand
fyrir gangandi og hjólandi.
Koma þarf upp vegvísum við stígamót.
Umferðarmerki þurfa að koma upp á þeim stöðum
þar sem stígar þvera akvegi.
Til að minnka áhrif sjónmengunar, hávaðamengunar,
loftmengunar og áhrif vinds þá leggjum við til
að trjám verð komið fyrir á opnum svæðum
samtímis og unnið er við frágang á þeim
svæðum.
Til að stígar þveri sem sjaldnast akvegi leggjum við
til að stígurinn liggi í undirgöngum á öllum
stöðum þar sem því verði við komið.
Til að minnka kostnað við slíkar aðgerðir leggjum
við til að stígar verði lagðir um ræsisrör
svipað því sem sjá má undir Grafningsvegi
(360) milli Heiðarbæjar og Þingvallavegar (36).
Landsamtök hjólreiðamanna og Íslenski fjallahjólaklúbburinn
gera 5 athugasemdir við fyrirhugaðar framkvæmdir sem sjá
má á meðfylgjandi teikningum.
Athugasemd við framkvæmdir, sjá meðfylgjandi teikningu (800x400)
Athugasemd 1
Þar sem líta verður á Vesturlandsveg sem aðalbraut þá verður að fækka hlykkjum á stígnum og leggja hann með sem minnstum hæðarbreytingum. Það er ótvíræð hætta á slysum ef stígurinn þverar tvisvar akbrautina á gatnamótum núverandi Víkurvegar og Vesturlandsvegar. Því leggjum við til að stigurinn liggi í undirgöngum undir akbrautina samkvæmt athugasemd 1 og þaðan í beinu framhaldi undir tilvonandi brú undir Víkurveg.
Athugasemd 2
Í framhaldi af athugasemd 1 þarf stígurinn að taka tillit til landslagsins svo hann liggi eins beint og hægt er og mishæðir séu sem minnstar á leiðinni í átt til Mosfellsbæjar. Við viljum svo árétta það að stígurinn liggi í göngum undir tilvonandi rampa eins og gert er ráð fyrir á teikningum (athugasemd 1 og 2).
Athugasemd 3
Um leið og stígurinn kemur af brúnni til suðurs þarf hann að liggja í mjúkum sveig frá veginum og yfir rampinn sem kemur frá Vesturlandsvegi. Þar sem stígurinn meðfram Víkurvegi hefur aðalbrautarrétt þarf að setja biðskyldu fyrir bíla. Umferðarmerki sem varar bílstjóra við hjólandi umferð úr báðum áttum þarf að setja á áberandi stað við rampinn.
Athugasemd 4
Yfir að gatnamótum Þúsaldar og Víkurvegar
liggur stígurinn í beinni línu að og yfir götuna
Þúsöld (engar óþarfa beygjur).
Þar verður að setja stöðvunarlínu á
stíginn og sérstök umferðarljós fyrir hjólreiðamenn
og sér fyrir gangandi.
Stöðvunarlína umferðarljósa fyrir bíla
færist því aftar sem þessu nemur.
Athugasemd 5
Það sama gildir um athugasemd 5 og athugasemd 4.
Til útskýringar þá leggjum við þetta
til, þar sem þetta er stysta leið yfir akveg og gatnamót.
Þarna skapast minnsta slysahættan um leið og jafnræði
ríkir milli vegfarenda.
F.h Landssamtök hjólreiðamanna
____________________________
Sigurður M Grétarsson formaður
lhm@islandia.is
F.h. íslenska fjallahjólaklúbbsins
___________________________
Alda Jónsdóttir formaður
ifhk@mmedia.is