Byggð um Suðurbæi, Viðfjörð
og Hellisfjörð fór í eyði fyrir
og um 1955. Bæjaröðin er þessi: Barðsnes,
Gerði (Barðsnesgerði), Gerðisstekkur,
Stuðlar, Borg, Viðfjörður, Hellisfjörður
og Sveinsstaðir í Hellisfirði og liggur
hlaupaleiðin um tún flestra eyðibýlanna.
Í Viðfirði var áður
höfuðból og mjög reimt. Þar
stendur reisulegur bær frá 1938 sem Guðjón
Samúelsson arkitekt teiknaði. Þjóðleiðin
til Neskaupstaðar lá yfir Dys og út
í Viðfjörð til 1949 en þá
var lagður vegur yfir Oddsskarð. Voru bílar
og farþegar ferjaðir með bát frá
Viðfirði til Neskaupstaðar.
23. júlí
2013 Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup
2013
Sautjánda Barðsneshlaupið verður haldið
í Norðfirði laugardaginn 3. ágúst
næstkomandi. Einnig verður boðið upp á
13 km Hellisfjarðarhalup eins og fyrri ár.
SKRÁNING Í BARÐSNES- OG HELLISFJARÐARHLAUP
FER FRAM Á HLAUP.IS
Gjaldið er 4.500 fyrir Barðsneshlaup og 3.500 fyrir
Hellisfjarðarhlaup.
Fyrstu 25 hlaupararnir sem skrá sig í Barðsnes
og Hellisfjörð fá boli merkta Barðsneshlaupi
frá 66°N.
3. júlí 2012 Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup
2012
Sextánda Barðsneshlaupið verður haldið
í Norðfirði laugardaginn 4. ágúst
næstkomandi. Einnig verður boðið upp á
13 km Hellisfjarðarhalup eins og fyrri ár.
SKRÁNING Í BARÐSNES- OG HELLISFJARÐARHLAUP
FER FRAM Á HLAUP.IS
Gjaldið er 4.500 fyrir Barðsneshlaup og 3.500 fyrir
Hellisfjarðarhlaup.
25 fyrstu sem skrá sig í Barðsnes og 25
fyrstu sem skrá sig í Hellisfjörð fá
boli merkta Barðsneshlaupi og 66°N.
3. ágúst 2011 Tímar í Barðsnes-
og Hellisfjarðar-
hlaupi 2011
Tímar í Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaupi
eru nú komnir inn á Hlaup.is.
Þátttka að þessu sinni var eins og
verið hefur undanfarin ár.
Elsta konan sem hljóp að þessu
sinni er fædd 1956, en það var Sigrún
Konráðsdóttir úr Reykjavík
sem kom sú 29. í mark á tímanum
03:41:03.
Elsti karlinn var sem fyrr Ingólfur
S. Sveinsson, upphafsmaður hlaupsins, fæddur 1939
og kom hann 30. í mark á tímanum 03:42:01.
Engar bætingar voru á 10 bestu tímum karlhlaupara,
en konurnar bættu sig nokkuð og sérstaklega
í Hellisfjarðarhlaupi > Sjá bestu
tíma í hlaupunum í gegnum árin.
Hér fyrir neðan má sjá fimm fótfráustu
hlauparana í kvenna- og karlaflokki Barðsneshlaupsins
og svo þá tíu fyrstu sem skiluðu sér
í mark í Hellisfjarðarhlaupinu.
19. júlí 2011 Vefskráning hafin í Barðsnes-
og Hellisfjarðarhlaup
Forskráning í Barðsnes- og Hellisfjarðarhlaup
er hafin og stendur til kl. 23:30 miðvikudaginn
27. júlí. Barðsneshlaup 27 km kostar
kr. 4.500 og Hellisfjarðarhlaup 13 km kostar kr. 3.500.
ATH! að EKKI verður tekið á móti skráningum
á bryggjunni eins og verið hefur og því
er um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning
er á Hlaup.is
11.
júlí 2011 Barðsneshlaupið komið á
Facebook
Nú styttist í fimmtánda Barðsneshlaupið,
en það var Ingólfur Sveinsson, læknir
og upphafsmaður hlaupsins, sem hljóp þessa
leið skipulega í fyrsta skipti við fjórða
mann sumarið 1997.
Barðsneshlaupið og Hellisfjarðarhlaupið verður
að venju á dagskrá Neistaflugs í Neskaupstað
laugardaginn 30. júlí um verslunarmannahelgina
næstu. Fylgist með hér í vefnum og á
Fésbókinni!
Tímar í Barðsnes-
og Hellisfjarðar-
hlaupi 2001 til 2012:
BARDSNES
OFF ROAD RUN
The
Bardsnes off road run is an annual 27 km adventure race
in East-Iceland, held in and around the town of Neskaup-stadur
the first Saturday in August. Read
more
FRÉTTIR
7.
ágúst 2007 Nýtt met
í Barðsneshlaupi:
tvegga stunda múrinn hruninn!
Barðsneshlaup og Hellisfjarðarhlaup voru hlaupin
laugardaginn 4. ágúst s.l. í mildu
veðri. Aldrei áður hafa jafn margir tekið
þátt; 28 hlauparar voru skráðir
í og luku Barðsneshlaupi; 13 hlauparar í
Hellisfjarðarhlaup. Tólf hlupu Barðsnes
undir þremur tímum. Meira
SÖGUR
ÚR HLAUPINU
Sjö
km inn í Viðfjörð, sex inn í
Hellisfjörð, þó nokkrir km upp Götuhjallann
og þaðan hellingur í bæinn. Svona
skiptir maður leiðinni upp og reynir að áætla
hversu hratt megi hlaupa svo maður drífi alla
leið. Lesa
UMSAGNIR
Það voru þreyttir
en ánægðir menn sem báru saman
bækur sínar í heitu pottunum að
hlaupi loknu. Var það almennur rómur
okkar, sem vorum að þreyta þetta hlaup
í fyrsta sinni, að þetta væri eitthvert
skemmtilegasta og fjölbreyttasta hlaup sem við
hefðum tekið þátt í.
Meira
HAGNÝTAR
UPPLÝSINGAR
Gisting Tvö hótel eru í
Neskaupstað, en einnig ókeypis tjaldsvæði
með ágætri þjónustu. Hótel
Capitano býður Barðsneshlaupurum sérstakan
afslátt af gistingu. Meira