|
INNGANGUREf gengið er út frá að LJ (Lífveran Jörð) sé sama hugmyndin og MJ (Móðir Jörð), þá væri freistandi að reyna að nota mismunandi "viðbrögð" samfélaganna við henni (sem sama áreiti) sem innsýn eða mælistiku á ólíkan hugarheim þeirra. Með öðrum orðum, hægt væri að spyrja sjálfan sig hvað það er í samfélaginu sem gerir það að verkum að hugmyndin blómstrar á einum stað en ekki öðrum? Í raun er mjög auðvelt að halda á þessa braut og álykta sem svo að MJ og LJ séu sama hugmyndin svo lengi sem menn einblína á þá staðreynd að allar mæður eru óumflýjanlega lífverur (og að Jörð vísi í báðum tilvikum í sömu merkingu). Þessi þægilega og hreinlega nálgun gengur út frá hinni módernísku trú að orðin innihaldi merkingu og að hægt sé að flokka og skilgreina alla tilveruna með tungumálinu. Að baki hverju orði sé skýr og ótvírætt skilgeinanleg merking, og þannig feli hugmyndin Móðir Jörð skýrt og greinilega í sér Lífveruna Jörð. Út frá þessu er væri síðan hægt að álykta röklega að um allan heim á öllum tímum hafi menn vitað innst inni, af innsæinu einu saman, það sem við í dag erum að komast að eftir langa vísindalega þrautagöngu. Hér er sem sé haldið fram að forverar okkar á Jörðinni hafi hugsað sér jörðina sem lífveru með sama hætti og gert er í Gaiakenningunni. Þessa ályktun gagnrýni
ég í ritgerðinni og til þess tek ég upp
póstmóderníska nálgun. Ólíkt
módernismanum gengur póstmódernisminn út á
vantraust á færni tungumálsins til að gera raunveruleikanum
skil, vegna þess að heimurinn er í eðli sínu
samfella, en orðin afmörkuð og aðgreind. Samsvörunin
milli raunveruleikans og tungumálsins er því ekki ótvíræð
og skýr, og hver og einn verður að lesa inn í merkingu
orðsins að einhverju leyti sjálfur án þess
að geta nokkurn tímann verið viss um að næsti
maður leggi nákvæmlega sömu merkingu í viðkomandi
orð . Orðin sjálf endurspegla því ekki skýrt
merkinguna að baki og þvi ekki hægt að ganga að
því vísu að sama orðið hafi sömu merkingu
í hvert skipti sem það er notað. Merkingin er breytilegri
en orðið sjálft, og lesum við út úr henni
eftir samhenginu hverju sinni.
Öfugt við módernisma, sem tók því sem gefnu að um sömu hugmynd væri að ræða og að hægt væri að líta á hana sem hlutlægan veruleika, utanaðkomandi "áreiti" sem samfélagið bregst við með þeim hætti sem lýsandi væri fyrir eðli samfélagsins, þá lít ég á samfélögin sem uppsprettu merkingar hugtakanna. Samfélagið er samhengið sem gefur orðunum "Lífvera", "Jörð" og "Móðir" merkingu, og hún er mismunandi eftir því í hvaða samhengi (samfélag, hugmyndaheimur, tími) orðin birtast. Ég skoða því orðin út frá samfélaginu, en ekki öfugt, og sýni í leiðinni fram á að MJ og LJ séu í raun mjög ólíkar hugmyndir að mörgu leyti þó svo þær sannarlega skarist töluvert við fyrstu sýn. Hér á eftir verður því
hvert hugtak (Jörð, móðir og lífvera) skoðað
ásamt mismunandi merkingarmöguleikum þeirra (eftir félagslegu
og sögulegu samhengi) og hvernig þeir hafa áhrif á
samanburð hugtakanna MJ og LJ.
|