Tölvupóstur sendur á alla fjölmiðla.
Stjórnarfundur Landssamtaka
hjólreiðamanna, haldinn 3. júlí 2008 ályktar:
Mikilvægt er að leggja greiðar og fullgildar hjólreiðabrautir
meðfram stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu, aðgreindar frá
gangstéttum og akbrautum.
Landssamtök hjólreiðamanna harma að ekki skuli vera gert ráð fyrir
hjólreiðabraut með aðgreindum stefnum í tengslum við lagningu
forgangsakreinar á Miklubraut, sem nú er í vinnslu. Sú hljóðmön sem
mokað hefur verið upp samfara þessari framkvæmd mun klárlega þrengja
að þeim gangstíg sem fyrir er.
Samtökin hvetja Reykjavíkurborg og Vegagerðina til að bregðast
skjótt við og leggja fullgilda aðgreinda hjólreiðabraut meðfram
Miklubraut. Ef jafnræði á að ríkja milli samgöngumáta er mikilvægt
að framvegis verði hugað að slíku við lagningu akbrauta.