Reykjavík 4. nóvember
2007
Tölvupóstur sendur til:
Péturs Bolla Jóhannessonar skipulags og byggingarfulltrúa,
Péturs
Halldórssonar dagskrárgerðarmanns og á netfangið
reidhjol@akureyri.is
Efni: Hjólreiðabrautir og
göngustígar á Akureyri
Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) óska eftir að koma eftirfarandi á
framfæri vegna viðtals í útvarpsþættinum "Vítt
og breitt" á Rás 1, fimmtudaginn 25. október sl. Þar ræddi Pétur
Halldórsson við Guðmund Hauk Sigurðsson frá
Verkfræðistofunni
VGK um stígagerð á
Akureyri.
Landssamtökin fagna því sem kom fram í viðtalinu að Akureyrarbær
skuli frá upphafi leita samráða við ýmsa hagsmunaaðila við stígagerð
á Akureyri.
Það kom einnig fram að VGK hefur gert samræmt
stígakort fyrir höfuðborgarsvæðið og að til standi að gera slíkt
á Akureyri. LHM hvetur Akureyrarbæ til að fara EKKI sömu leið og
farin var á höfuðborgarsvæðinu. Þar var byrjað á kortagerð af
stórgölluðu gangstígakerfi og öll vinna lögð í að “endurbæta” kortið
fremur en a bæta aðstöðu og umferðaöryggi hjólandi og gangandi
vegfarenda. Óánægja er meðal hjólreiðamanna á höfuðborgarsvæðinu með
þennan framkvæmdahátt og nokkuð ljóst að sveitastjórnir á
höfuðborgarsvæðinu verða nú þegar að taka með öðrum hætti og
faglegar á þessum málum.
Ef hugmynd er að auka hjólreiðar á Akureyri og samtímis bæta
umferðaröryggi verður að fara aðra leið en farin hefur verið á
höfuborgarsvæðinu.
Ekki verður nánar farið út í mistök sem gerð hafa verið á
höfuðborgarsvæðinu en ef óskað verður eftir nánari upplýsingum,
verður þeim upplýsingum komið á framfæri.
Hjólreiðar eiga ekki samleið með gangandi vegfarendum, fremur en
bílar með hestum.
Nánari upplýsingar er að finna í
hjálögðu viðhengi. (sjá hér neðar)
Landssamtök hjólreiðamanna hafa áratuga reynslu af hjólreiðum til
samgangna bæði hér heima og erlendis. Þar er einnig að finna
þekkingu á öllu sem tengist hjólreiðum, samgöngum og umferðaröryggi.
Landssamtök hjólreiðamanna óska eftir frekara samstarfi vegna
þessrar vinnu hjá Akureyrarbæ, því að samtökunum er umhugað um að
sömu mistök verði ekki gerð á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu.
Landssamtökin óska eftir upplýsingum um stöðu mála í þessari vinnu
og hverjar séu í raun hugmyndir Akureyrarbæjar um þessa framkvæmd.
Undirritaður er tilbúinn til að senda meira efni um
umferðaröryggismál, hönnun og frágang hjólreiðabrauta, sé þess
óskað.
Með bestu kveðjum,
f.h. Landssamtaka hjólreiðamanna
Magnús Bergsson
www.hjol.org
Vegna
viðtals í útvarpsþættinum "Vítt og breitt" á Rás 1,
fimmtudaginn 25. október sl. þar sem Pétur Halldórsson ræddi
við Guðmund Hauk Sigurðsson frá Verkfræðistofunni VGK um
stígagerð á Akureyri, vilja Landssamtök hjólreiðamanna (LHM)
koma eftirfarandi viðbótarupplýsingum á framfæri:
Hjólreiðar eiga ekki samleið með gangandi vegfarendum,
fremur en bílar með hestum. Í Reykjavík hefur það sýnt sig
að landslagsarkitektar geta hannað gangstéttir og
útivistarstíga fyrir gangandi umferð, en það sama á ekki við
um hjólreiðabrautir. Eins og kom fram í viðtali Péturs við
Guðmund Hauk var það hjólreiðamannvirkjum í Óðinsvéum,
Danmörku, til mikilla bóta þegar hönnuðir fóru sjálfir að
hjóla. Hjólreiðabrautir verður að leggja samhliða lagningu
akvega, í samræmi við almennt leiðarval og ferðavenjur.
Hönnuðir þurfa að hafa víðtæka þekkingu á hjólreiðum til
samgangna.
Þó að VGK sé án efa gott fyrirtæki á sínu sviði þá ætti
Akureyrarbær einnig að athuga hvort ekki væri ráð að leita
ráðgjafar erlendis, t. d. má benda á netfang hjá Bypad,
http://www.bypad.org
Vert er að benda á að samkvæmt umferðalögum eiga
hjólreiðamenn að hjóla á götunum. Þeir eru hins vegar gestir
á gangstéttum. Gangstéttir hafa ekki sömu hönnunarforsendur
og hjólreiðabrautir. Gangstéttir eru því í fæstum tilfellum
hannaðar með hjólreiðar í huga og geta því oftar en ekki
verið hættulegri en t.d. akbrautir. Til að auka öryggi
hjólreiðafólks má hiklaust mæla með "hjólavísum í
vegstæði" (Bike-and-chevron). Sjá:
http://www.sfmta.com/cms/uploadedfiles/dpt/bike/
Bike_Plan/Shared Lane Marking Full Report-052404.pdf
og
http://www.bikewalk.net/sessions/58_Lane_markings/
Birk/Shared_Lane_Markings_Presentation_9_07_04.pdf
Vegna mikilvægis þess að Akureyrarbær kynni sér mjög vel
Bike and Shevron (B&C) útfærsluna verður að útskýra þessa
lausn í stuttu máli og á íslensku:
Í fyrsta lagi á Bike and chevron (B&C) ekki að koma í
stað hjólreiðabrauta. Hún á aðeins að auka öryggi
hjólreiðamanna sem hjóla á götunum. Hjólreiðafólk á
nefnilega að hjóla á götunum þó að það sé ekki öllum ljóst.
Menn eru farnir að nota B&C víða um heim ekki aðeins í San
Francisco
Það hefur sýnt sig að þar sem B&C er notað finnst
hjólreiðafólki það mun öruggara í umferðinni. Ökumenn víkja
betur frá hjólreiðafólki.
B&C er mjög ódýr lausn ef menn ætla að bæta umferðaöryggi
með skjótum, ódýrum og virkum hætti. Það þarf ekki að breyta
skipulagi eða umferðalögum þar sem samgönguráðuneytið telur
málefni hjólreiðafólks tilheyra sveitafélögunum.
Hvað sem öðru liður þá er öruggara að hjóla á flestum götum
og vera þar sýnilegur ökumönnum en að hjóla eftir einhverjum
hliðarstígum sem ökumönnum eru ekki alltaf sýnilegir. Slys á
hjólreiðafólki á sér oftast nær stað þar sem stígur þverar
akbraut.
B&C hentar mjög vel hjólreiðafólki sem vill nota reiðhjólið
sem samgöngutæki. Akvegir eru þegar til staðar og ökumenn
þekkja þær leiðir. Þannig er hægt að koma þeim skilaboðum á
framfæri að þar má lika hjóla. B&C merkið eitt og sér minnir
ökumenn stöðugt á að þarna má lika hjóla og alltaf að búast
við að mæta hjólreiðamanni. B&C er margfalt ódýrara en
litað malbik. Það er lika mun ódýrara að endurnýja það
reglulega.
Sé litið til íslenskra aðstæðna má segja eftirfarandi: Ef
B&C er sett í götustæði snemma vors og því fylgir góð
kynning í nokkra mánuði í fjölmiðlum ætti B&C að ná tilgangi
sínum.
Þó að snjói yfir B&C einhverjar vikur á ári á það við um
allar götumerkingar, lika litað malbik. Því er mikilvægt að
kynna þetta snemma vors svo að B&C verði allt sumarið fyrir
augum og eyrum ökumanna.
Á Íslandi hefur það verið opinber stafna að stía í sundur
gangandi og hjólandi umferð frá akandi umferð. Það er röng
stefna því að nú er svo komið að Íslenskir ökumenn taka
lítið tillit til annarra vegfarenda en bíla. Á sama tíma og
hjólandi umferð hefur verið þvinguð upp á gangstéttir hefur
ekkert verið gert til að bæta aðstöðu hjólreiðafólks. Það er
ekkert sem bendir til þess að það verði gert á næstu árum
miðað við núverandi stefnu í samgöngumálum. Slysahætta á
gangstéttum er umtalsverð. Því er mikilvægt að hjólreiðafólk
fari aftur út á göturnar og verði þar sýnilegt. Þar er nú
þegar fyrir býsna gott samgöngukerfi, rúmgott, án glerbrota,
blindhorna eða annarra hindrana. Þar ríkja venjulegar
umferðarreglur. Í þessari umræðu vill oft gleymast að
reiðhjól er flokkað sem ökutæki í umferðarlögum. Ökumenn
verða einfaldlega að taka tillit til þeirra sem eru á
götunum. Ökumenn vélknúinna ökutækja eiga ekki einir að
njóta bestu samgönguleiða sem völ er á og þegar er búið að
kosta miklu til. Aðgreint hjólreiðabrautakerfi er
nauðsynlegt samhliða umferðarþungum götum og þar sem nóg
landrými er til staðar, en það verður ekki byggt upp á
skömmum tíma eða með sama hraða og B&C.
Hvað svo sem virðist vera að gerast á Akureyri eða þótt
litið sé til stöðu mála munu líða mörg ár áður en nothæfar
hjólreiðabrautir geta orðið að veruleika. Það hefur lika
sýnt sig að hjólreiðabrautir eru ekki gallalausar sbr. við
Lönguhlíð í Reykjavík. Það ætti að vera kappsmál fyrir
Akureyrarbæ að merkja sem flestar götur með B&C. Lagning
aðgreindra hjólreiðabrauta og gangstíga koma svo væntanlega
á næstu árum. Nánari upplýsingar um B&C má finna með því að
slá inn
“Bike and chevron” í leitarvélina www.Google.com
Landssamtök hjólreiðamanna gerðu athugasemd við síðustu
samgönguáætlun þar sem Akureyri og nágrenni var til
umfjöllunar.
http://www.islandia.is/lhm/BrefLHM/2007/020307.htm
Mikilvægt er að 3ja metra breiðar gangstéttir séu ekki
merktar með óbrotinni linu til að aðgreina gangandi og
hjólandi vegfarendur (1+2 stígur) eins og gert hefur verið
víða á höfuðborgarsvæðinu. Sjá nánar um það í athugasemd LHM
við umferðaröryggisáætlun,
http://www.islandia.is/lhm/BrefLHM/2004/athumferd.htm
Ýmsar fleiri upplýsingar má
finna á vefsíðu Landssamtaka hjólreiðamanna
www.hjol.org . Einnig má
hafa samband við Landssamtök hjólreiðamanna á netfanginu
lhm@islandia.is
|