Reykjavík 18. júlí. 2006

Góðan dag.

Ég óska eftir að fá senda nýjustu útgáfu af Samgönguáætlun 2007-2018.
Hjólandi og gangandi vegfarendur þurfa að hafa tíma til að koma að athugasemdum áður en hún verður lögð fram á komandi haustþingi.

Kveðja

F.h. Landssamtaka hjólreiðamanna
Magnús Bergsson

Pósthólf 5193
125 Reykjavík

http://hjol.org

Svar við þessu bréfi er hér fyrir neðan


Reykjavík 21. júlí. 2006


Sæll!

Áætlunin er enn á vinnslustigi. Gert er ráð fyrir að umhverfisskýrsla vegna áætlunarinnar verði auglýst á næstu vikum og með henni samgönguáætlunin. Auglýsingin verður í helstu blöðum og heimasíðum samgönguráðuneytisuns og viðkomandi stofnana þess. Á heimasíðunum má síðan lesa áætlunina og prenta hana út.

Kveðja / Regards
________________________________________
Eiríkur Bjarnason
Verkfræðingur / Civil engineer, Dipl. Ing.
Samgönguráðuneytið / Ministry of Communications
IS-150 Reykjavík
Ísland / Iceland

Sími / Tel: +354 545 8253
Fax: +354 562 1702