Aalfundur Landverndar
23. apríl 2005

Tillaga Magnúsar Bergssonar félaga í Landvernd
Stofnbrautir fyrir hjólreiðar

Aðalfundur Landverndar hvetur Alþingi að beita sér fyrir því að hjólreiðar verði formlega viðurkenndar og fái sess sem fullgildur kostur í samgöngumálum. Mikilvægt skref í þessu sambandi er að Alþingi samþykki framlagða tillögu til þingsályktunar um stofnbrautir fyrir hjólreiðar.

Greinargerð
Alþingi hefur haft til umfjöllunar þingsályktunartillögu um að hjólreiðar verði formlega viðurkenndar og fái sess sem fullgildur kostur í samgöngumálum. Óþarft er að tíunda þau ský og góðu rök fyrir því að auka hlutdeild hjólreiða í samgöngum og nægir að vísa í stefnumörkun um sjálfbæra þróun, skýrslur sem ráðuneyti samgöngumála og Vegagerðin hafa tekið saman og þau áform stjórnvalda að takamarka losun gróðurhúsalofttegunda. Allt ber þetta að sama brunni og undirstrikar mikilvægi þess að greiða samgönguleiðir fyrir reiðhjól með stofnbrautakerfi sem ríkisvaldið sjái um eða taki þátt í að kosta í samstarfi við sveitarfélögin.