Sæll Hafliði

Landssamtök hjólreiðamanna óska eftir upplýsingum um framkvæmdina á göngustígum umhvefis mislægu gatnamótin við Stekkjarbakka. Í símtali við eftirlitsaðila í vor var því lofað að framkvæmdum mundi ljúka 15. október.

Kveðja,
Magnús Bergsson

Landssamtök hjólreiðamanna
Pósthólf 5193
125 Reaykjavík

http://islandia.is/lhm
 

Sæll Magnús Bergsson,

Samkvæmt útboði á verkinu og samningi við Verktaka þá á hluta af framkvæmdunum að vera lokið í nóvember á þessu ári, þar með talið frágangur á þeim göngustígum sem tengjast þessu verkefni.  Að vísu verður ekki hægt að setja endanlegt yfirborð á stuttan kafla göngustígs austan megin við nýju göngubrúnna, þar sem jarðvegur undir þeim stíg á eftir að síga töluvert, þ.e. þar verður malarstígur þangað til endanlegt yfirborð verður sett á hann næsta sumar.

Með kveðju,
Hafliði Richard Jónsson
 

VEGAGERÐIN                 Sími: 522 1446
Borgartúni 5,                Farsími: 860 5614
105 Reykjavík          Bréfasími: 522 1409