Veikindadagar

María og Hugi voru bæði veik í lok apríl, Hugi með hlaupabólu og María með hita og hósta. Þau voru óskaplega sátt við að hafa félagsskap hvort af öðru því ekki var mikils að vænta frá mömmu sem þurfti að læra allt of mikið!

Það er nú aldeilis gott að geta kúrt sig undir teppi og kíkt á spólu þegar maður er lasinn heima.

Bólu-Hjálmar ... reyndar sjást nú næstum engar bólur á þessari mynd! Þær voru þarna nú samt en sem betur fer var hann frekar góður og þetta tók fljótt af!

Það gekk frekar illa að fá Huga til að sofna út af kláðanum. Ég settist þó bara upp á loft og fór að horfa á sjónvarpið og skömmu seinna heyrðist ekki múkk úr barnaherberiginu svo ég gerði ráð fyrir að pilturinn væri loks sofnaður. Það reyndist svo sem alveg rétt en þegar ég kom niður nokkru seinna sá ég að það var bara ekki á alveg réttum stað!

Hann hafði skriðið upp í til stóru systur og greinilega fundist notalegra að sofna þar þó hann klæjaði ósköp mikið!