Útskrift

Þann 28. febrúar útskrifaðist húsfrúin á Bárugötu frá Háskóla Íslands með B.A.-próf í bókmenntafræði. Dagurinn var annasamur og því gekk ekki alveg nógu vel að skrásetja hann með digitaljálknum en hér koma engu að síður nokkrar myndir frá honum og af fáeinum útskriftargjöfum.

Útskriftarbarnið og börnin. Ykkur sem vonuðust eftir mynd af dressinu verður því miður ekki að ósk ykkar þar sem það sést aðeins í jakkann á þessum örfáu myndum sem teknar voru á deginum sjálfum! 

Sætu krílin á Bakkastöðum rétt áður en veislan hófst formlega... Hugi eitthvað fúll þó.

María og Hugi stóðu sig ótrúlega vel í veislunni þrátt fyrir að þau væru orðin þreytt undir lokin. Hugi tók sama númer og í afmælinu sínu, þ.e. hann sofnaði vært löngu áður en gleðin var búin!

Og þá eru það gjafirnar! Að sjálfsögðu voru útskriftarblómin mynduð í bak og fyrir! Þessar liljur komu frá ömmu á Sóló.

Já og einir guðdómlega fagrir bleikir skór sem Jódís mín stóð fyrir að keyptir yrðu. Við höfðum verið saman í bænum tveimur dögum áður þar sem ég hafði mátað þá og þessi elska hafði lagt allar upplýsingar á minnið og staðið fyrir því að sinn hluti fjölskyldunnar gæfi mér þá í útskriftargjöf.

Þetta ótrúlega fallega hálsmen var útskriftargjöfin frá Einari, Maríu, Huga og Bjarti. Steinninn heitir túrmalín og ku þetta vera einstaklega fallegt afbrigði. María stóð sig með prýði í að halda gjöfinni leyndri, var með tilbúið plott um að segja mér að hún ætlaði að gefa mér bók sem reyndar gleymdist alveg fram á síðustu stundu. Þá rétti hún mér agnarsmáa pakkann og sagði: Þetta er örugglega bók!!!

 

Þetta er nú bara brot af gjöfunum, ég fékk svolítið meira af skarti og frábærum húsmunum, dekur af öllum gerðum, bæði í kremuðu formi en líka andlitsbað og heilnudd (MJÖG kærkomið!) og svolítinn aur!