|
|
Um okkur
|
|
|
|
Einar Þór Þórarinsson Fæddur: 5. desember 1973 á Sjúkrahúsi Akraness. Staða: Heimilislæknir á Fålhagens vårdcentral í Uppsölum. Áhugamál: Lesa bækur, útivist, jazz, zen, myndlist, hjóla og elda góðan mat. Best að borða: nýbakaða Guðrúnar-snúðar með mjólk. Best að vera: fyrir framan arininn með bók. Einar segir: Hvað eigum við að hafa í matinn?
Guðrún Lára Pétursdóttir Fædd: 9. febrúar 1976 á fæðingardeild Landspítalans. Staða: Nemi í bókmenntafræði á M.A.-stigi við Háskóla Íslands. Áhugamál: Lesa, prjóna, sauma, taka myndir, drekka kaffi og fara í búðir. Best að borða: góða súkkulaðiköku. Best að vera: Í hvíta húsmóðurstólnum fyrir framan arineldinn, með fæturna uppi á borði og kaffibolla við höndina. Guðrún segir: Nennir þú að gera kaffi?
María Einarsdóttir Fædd: 23. apríl 2000 á fæðingardeild Landspítalans. Staða: Nemi í 3A í Vänge skola. Áhugamál: Lesa skemmtilegar bækur, föndra, baða og leika við vinkonur. Best að borða: pizzu. Best að vera: í vatni og í rúminu. María segir: Getum við keypt laugardagsnammi?
Hugi Einarsson Fæddur: 7. janúar 2002 á fæðingardeild Landspítalans. Staða: Nemi í 1A í Vänge skola. Áhugamál: Byggja úr lego, róla í tréhúsinu og baða. Best að borða: pizzu og hamborgara. Best að vera: að baða og busla. Hugi segir: Ég er farinn út!
Baldur Tumi Einarsson Fæddur: 27. maí 2009 á fæðingardeild Akademiska Sjukhuset. Staða: Framkvæmdastjóri á Konsulentvägen 2B með fjóra undirmenn. Áhugamál: Busla í buslulauginni, taka úr uppþvotta- og þvottavél, fjarstýringar, horfa á Stubbana og leika við Maríu og Huga. Best að borða: jarðaber. Best að vera: í buslulauginni eða í fangi undirmanns. Baldur Tumi segir: Datt.
|