Tiltekt í febrúar
María hjálpar til við að þurrka af borðum. Við foreldrarnir erum svo heppin að eiga dóttur sem finnst eiginlega ekkert skemmtilegra en að þurrka af og er því meira en lítið tilbúin til þátttöku í öllum þrifum og tiltektum.
Hugi hefur hins vegar takmarkaðan áhuga á þrifum en honum finnst samt svaka sport að fá að sveifla tuskunni eitthvað. Hér er hann farinn að aðstoða Maríu við afþurrkun!
Hann hefur samt mun meiri áhuga á að leika sér og hér sést hann annast dúkkuna Lottu af föðurlegri umhyggju!
Eftir miklar annir er svo ágæt leið til að slaka á að setjast og hlusta á Dýrin í Hálsaskógi ... einu sinni enn!!! María passar Huga sinn svo hann verði ekki hræddur við Mikka ref!