Júnímyndir
1. júní og sumarið formlega hafið!!! Við fögnuðum því með sólskinsdegi í garðinum á Bárugötu.
Sumarskvísa í sólbaði.
Systkinaknús.
Maður þarf nú að vera smart!
Síðan var haldið niður að tjörn.
Á leiðinni heim voru svo allir orðnir þreyttir þannig að Maríu var bara skellt upp í kerruna til Huga og svo var stormað heim á leið
Þann 5. júní var farið í sveitaferð með Drafnarborg, leikskólanum hennar Maríu. Farið var að Grjóteyri í Kjós þar sem við skoðuðum dýrin og fengum okkur svo nesti. Borgarbörnin voru nú flest svolítið hrædd við dýrin og ekki laust við að þau kynnu ekki alveg fullkomlega skil á þeim því þegar rúturnar renndu í hlaðið sást þar einn hundur á vappi en hins vegar heyrðust fagnaðaróp víðsvegar um rútuna og var þá ýmst kallað kisa, hestur eða eitthvað annað. Smá rugl í gangi! Hugi var rosa spenntur að sjá dýrin og alveg óhræddur. Rauk á milli þeirra og vildi endilega fá að klappa kusunum.
Hugi var líka ótrúlega spenntur yfir kindunum og geitunum og skríkti af hlátri þar sem hann stóð og skoðaði.
Það voru litlir kettlingar á bænum, alveg ótrúlega sætir. Við fengum að halda á þeim og klappa. Hér er María að skoða þá.
Svo var borðað nesti í fallegum garði þarna við bæinn. Drafnarborg bauð upp á brauð með osti og bærinn Grjóteyri bauð okkur upp á mjólk beint af spenanum!
Mömmur, ömmur og pabbar þáðu kaffisopa áður en haldið var aftur heim á leið. Ömmu Imbu fannst skemmtilegast að sjá folöldin, mömmu fundust kettlingarnir sætastir og Maríu fannst hundurinn skemmtilegastur. Hugi þurfti hins vegar ekkert að gera upp á milli dýranna, þetta voru allt saman voffar!!!
Birna frænka hefur verið dugleg að fara út að ganga með Huga svo mamman fái frið til að skrifa ritgerð og hér er hann einmitt á leið í eina slíka ferð. Jódís frænka gaf okkur svona ægilega fína vindrellu í gær þegar við vorum að hanga hjá henni í búðinni.
Það þarf nú aðeins að skoða nánar hvernig þetta virkar! Þarna sést líka í rosalega flotta arfabeðið okkar í baksýn en við íbúarnir stefnum að því að rækta upp svona alnáttúrulegan blett í garðinum okkar sem engin mannleg hönd hefur snert á svo árum skiptir!!!
Sólskinsbros!
Maríu finnst rosalega gaman að leika með Huga og vinsælasti leikurinn er að „fara út í búð“. Þarna er hún búin að dressa þau upp í skó og sólgleraugu og Mía María er með í för, salíróleg í kerrunni sinni. Henni finnst mjög mikilvægt að leiða Huga því hann verður að passa sig svo vel á bílunum! Hugi er hins vegar ekki alltaf jafnhrifinn af því að leiða hana!
Dindi!!! (En það þýðir einmitt „týndur“ á Huga máli.)
Þarna var hann!!!
Og þarna er María líka!!!
Svona eru þau oft systkinin, það er svo gaman að horfa út um gluggann. Hugi þykist reyndar sjá bæði Ella og voffa í hvert sinn!
Hugi svolítið klíndur. Þarna eru þeir Einar nú ansi líkir, báðir með rautt skegg!
María fékk nýjan sundbol um daginn...og nýjan kút. Finnst ykkur hún ekki taka sig vel út þó það sé bara svona heima í stofu? Mamma hennar og pabbi vonast til að sjá hana sem oftast í þessum búning í sumar...en þá kannski frekar við meira viðeigandi aðstæður...til dæmis í sundi!
Það er nú hægt að grínast svolítið þó maður sé í sundbol!
Og svo er Huga bróður bara boðið upp í dans!
Við fengum þennan fína upphlut lánaðan hjá langömmu á Sóló fyrir löngu. Gleymdum hins vegar alltaf að mynda Maríu í honum en á þjóðhátíðardaginn 17. júní var auðvitað kjörið tækifæri. Upphluturinn er af Imbu ömmu frá því hún var lítil og hefði sennilega passað ágætlega á Maríu fyrir svona einu og hálfu ári! En hvað um það, gaman að eiga myndir af henni í honum! Við vorum búnar að fara í bæinn og kaupa svona fínan fána!
Ætli hún sé að hugsa um ávarp forsætisráðherra...nú eða ljóðið sem fjallkonan flutti?
Hann er nú svolítið stuttur þessi upphlutur...
...að ekki sé nú talað um hvað hann er þröngur!!! Úff, mikið er gott að komast úr þessu!
Við vorum boðin í grill hjá Rögnu og Kela á sumarsólstöðum! Þau búa að Lundi í Kópavogi sem er svona eins og sveitabær við Nýbýlaveginn!!! Þar er risastór garður og veðrið var alveg frábært þannig að við gátum bara setið úti á peysunum!
María með „blásiblóm“ en henni til mikillar ánægju var nóg af þeim í garðinum ásamt ýmsum öðrum „náttúrulegum“ gróðri sem mátti sko alveg traðka á eða tína!
Huga fannst í einu orði sagt alveg frábært að hafa frelsi til að hlaupa í grasinu.
Svo var sest að borðum. Keli grillaði alveg ótrúlega góðan lax með gráðaosti og svo svo voru þau hjónin búin að baka brauð og útbúa alls kyns meðlæti! En eitthvað eru Guðrún og Ragna í keimlíkum bolum....skyldi hönnuðurinn vera sá sami!? Og skyldi Harpa Kristín eitthvað sjá?!!!!
Hugi var alveg yndislegur og meðan fullorðna fólkið sat til borðs vildi hann helst bara leggjast í grasið og velta sér þar og „fíla“ náttúruna svolítið!
Eftir því sem leið á kvöldið fækkaði María fötum og var þarna orðin heldur fáklædd á stuttermabol og sokkabuxum!
Huga fannst alveg frábært að fá pabba til að kasta sér svona upp í loft og æpti svo: „attilli, attilli, attilli....“ eftir hvert skipti, en fyrir þá sem ekki skilja Hugamál þá þýðir það „aftur“!
Þetta er því miður eina myndin sem tekin var af Kela og ekki sést nú mikið af honum þarna! Það var líka ómögulegt að ná mynd af eldri heimasætunni að Lundi því Högna Sól var aðallega bara inni í „skógi“ þetta kvöld! Á endanum var svo liðinu smalað inn og haldið smá bíókvöld þar sem við fengum að sjá tvær stuttmydnir eftir Kela og skemmtum okkur hið besta yfir þeim! Það er nokkuð ljóst að erfitt verður að toppa þetta kvöld en hver veit nema við reynum það einhvern tíma í náinni framtíð!!!
Bárugötubörnin í garðinum á jónsmessunni. Nýjasta æðið hjá þeim er að láta draga sig á snjóþotunni hennar Söru í grasinu. Sara er svona líka vel útbúin þar sem hún var nýbúin að prófa nýja línuskauta!
Hugi fylgdist með af áhuga!
Og lék sér með bolta af mikilli leikni!
Einar hjálpar stelpunum að hjóla saman á þríhjólinu hennar Söru.
María á fleygiferð!