Háttatími

Eftir kvöldbaðið er vanalega mikið stuð hér á heimilinu og alveg ómissandi að hoppa svolítið í hjónarúminu sem reyndar gengur vanalega undir heitinu „mömmurúm“ (endurspeglar vonandi hlýhug í garð mömmunnar frekar en að hún sé svo yfirgangssöm í hjónabandinu ... hmmm, ég er því miður ekki viss hvor ástæðan sé líklegri!).

„ É datt í mömmuðúmi“!!!

María komin upp úr baðinu og í „handklæðakjólinn“ sívinsæla!

Svolítill úfinkollur eftir baðið!

Já það gengur stundum svolítið mikið á!!!