Febrúarhelgi

Ýmsir atburðir úr daglegu lífi Bárugötubúa helgina 20. - 22. febrúar

Á föstudagskvöldinu var alveg brjálað stuð á Maríu og Huga og þau fengust hreint ekki til að fara að sofa. Á þessu augnabliki hafði örþreytt móðirin gripið til þess óheillaráðs að leyfa þeim að sofa báðum í Maríurúmi. Það tókst þó ekki að róa þau með því móti heldur og á endanum voru systkinin aðskilin á ný! Þau sofnuðu svo á endanum hvort í sínu rúmi um klukkan ellefu!!!

Laugardagskvöld! Hugi sofnaði á sekúndunni örþreyttur eftir ævintýri gærdagsins (enda þótt hann hafi farið svona seint að sofa var ekkert gefið eftir á laugardagsmorgninum og mamma drifin fram úr um hálfáttaleytið!). María var hins vegar hin sprækasta og fékk að skoða bók uppi í rúmi! Eða það hélt mamma hennar að hún væri að gera þangað til hún heyrði tuldrað úr rúminu: „s-í-m-i ... sí-mi ... SÍMI!!! r-ó-l-a ... r-óla ... hmm það er ekki til neitt r-óla ... JÁ RÓLA!“ Já daman lét sig ekkert muna um að lesa þarna hvert orðið á fætur öðru þó hún sé ekki enn orðin fjögurra ára! Þetta var ótrúlega áreynslulaust hjá henni enda var hún ekkert meðvituð um að fylgst væri með sér ... um leið og stolta móðirin fór að skipta sér af þá gekk þetta heldur ver. Hún náði þó að lesa alveg upp á eigin spýtur a.m.k. eitt fimm stafa orð og helling af styttri orðum!

Sunnudagsmorgunn ... Hugi vaknaður snemma að vanda ... reyndar svo snemma að hann var enn hundþreyttur og fékk því að leggja sig aðeins í stofusófanum eftir morgunmat. Hann kom sér svona líka þægilega fyrir og hafði það notalegt, safnaði kröftum og fór svo á fullt inn í daginn!!!

María vöknuð líka og allir klæddir og komnir á ról!

María sunnudagsstelpa bíður eftir að pabbi komi heim úr vinnu svo hægt verði að hefja daginn sem var þaulskipulagður. Heimsókn til Birnu frænku, Kringluferð, heimsókn til Ástþórs Arnar, heimsókn til ömmu á Sóló og svo aftur heimsókn til Birnu!!!

Hugi ... kærir sig kollóttan!!!