Konunglegt brúðkaup í Kaupmannahöfn
Já þann 14. maí giftu þau Friðrik og Mary sig með pompi og pragt. Í Langagerðinu var haldin brúðkaupsvaka sem var einkar glæsileg. Þar voru samankomnar við stöllur, Svanhildur og ég, Vigdís föðursystir Svanhildar og svo Svanhildur eldri, föðuramma hennar. Að auki svaf Ólíver Marteinsson (og Vigdísar) af sér allt fjörið inni í rúmi.

Hinn sérbruggaði brúðkaupsbjór var á boðstólum!

Perlandi brúðkaupsbjór ... Danina skortir aldrei lýsingarorð!!!

Við urðum okkur að sjálfsögðu út um brúðartertuna og sýndum mikla fyrirhyggju með því að panta hana með löngum fyrirvara!Þær eru glæsilegar báðar tvær, tertan og Svanhildur!

Hér er hún í öllu sínu veldi með kórónu og allt!

Og ekki var bragðið síðra en útlitið ... alveg himnesk terta!

Spennan í hámarki og allt að gerast í Frúarkirkjunni og Langagerði!

Tertan komin á borðið, freyðivínsglösin bíða eftir að verða fyllt og Friðrik og Mary sest fyrir framan biskupinn!
Með svona brúðkaupsvöku þarf enginn á Kaupmannahöfn og Fredensborg að halda!!!