28 ára afmælisdagurinn
... en aðallega allar afmælisgjafirnar!!!
Dagurinn byrjaði ákaflega vel! Þessi fallegi púði kom út úr pakka sem ég opnaði með morgunkaffinu eldsnemma á afmælisdaginn! Ég er alveg himinsæl með hann og hef, nú þegar, fundið honum virðingarstað á betri sófa heimilisins.
Þetta var næsta afmælisgjöf sem ég fékk. Þessar fallegu liljur voru afmælisgjöf frá blómabúðarkonunni!!! Ég fór í uppáhaldsblómabúðina mína, Ráðhúsblóm, og þessi góða kona ákvað að gefa mér liljugreinina þegar hún frétti af því hvaða merkisdagur í lífi mínu var!!!
Ég tók að sjálfsögðu nokkrar myndir í bómamyndasafnið mitt!!!
Þetta var svo næsta gjöf. Hmmm ... ég veit nú eiginlega ekki alveg frá hverjum hún var. Annað hvort frá sjálfri mér eða einhverjum þeim sem gáfu mér pening!!! Nú er ég hætt að kaupa spariskó!!!
Svo bakaði ég köku og dekkaði svona ótrúlega fínt bleikt hátíðarborð. Það var alveg ótrúlega gaman að hitta fullt af skemmtilegu fólki, bjóða köku og kaffi, spjalla og hafa það notalegt!
Ég held þó að þetta hafi tvímælalaust verið besta gjöfin! Þessa mynd teiknaði María af mér rétt áður en hún fór að sofa! Ég sat fyrir og mér sýnist hún hafa fangað augnablikið nokkuð vel! Ef vel er að gáð má meðal annars sjá eyrnalokkana mína með svona dinglumdangli neðan úr og bleiku blómin og rörin sem prýddu hátíðarborðið!!! Hún heimtaði svo að fá að skrifa sjálf „Frá Maríu Til Guðrúnar“(hátíðleikinn var svo mikill að það var alls ekki hægt að skrifa „Til mömmu“!). Við Einar aðstoðuðum hana reyndar aðeins við hvaða stafir kæmu næst en hún skrifaði þetta alveg sjálf!!! Það er ekki spurning um að þessi mynd verður innrömmuð hið bráðasta!!!
Því miður náðist ekki mynd af öllum hinum fallegu gjöfunum. Allra best var þó að eiga skemmtilegan og notalegan dag í faðmi góðra vina og fjölskyldu, að hitta fólkið mitt og spjalla yfir kökusneið og kaffibolla og að knúsa litlu krílin mín!!!