Sunnudagurinn 23. maí 2004
Það voru „aðeins“ teknar 89 myndir á þessum eina sunnudegi og því vandlítið að smella broti af þeim hingað inn!!!
María og Hugi byrjuðu daginn á notalegu baði.
Sjáið þið hvað þau eru bæði eftivæntingarfull á svipinn?! Eina leiðin til að fá þau bæði til að horfa í linsuna meðan smellt er af er að plata þau með einhverjum skröksögum um að fingur ljósmyndarans sé um það bil að fara að gera eitthvað stórkostlegt!!!
Ömmu Imbu var svo boðið í sunnudagslæri úr Reykhólasveitinni. Maturinn var einkar vel heppnaður og enn einu sinni rætt um að gera það að reglulegum viðburði að snæða saman hádegisverð á sunnudögum. Eins og vanalega munu þó örugglega mánuðir líða þar til slíkt gerist næst!!!
Besta leiðin til að fá Huga til að borða þessa dagana er að fá honum bæði hníf og gaffal. Hann tekur það mjög alvarlega að vera treyst fyrir slíkum fullorðinsáhöldum og einbeitir sér svo mjög að hann tekur bara ekkert eftir því hvað hann borðar mikið!
María ber sig líka fagmannlega að!
Eftir hádegismatinn var ákveðið að keyra austur fyrir fjall og heimsækja ömmu á Sóló í sumarbústaðinn sinn. Þegar þangað var komið var byrjað á snöggri bátsferð enda ómissandi þegar komið er í sveitina hennar ömmu!
Hugi var til mikilla vandræða um borð í bátnum því hann var svo spenntur að fá að sulla í vatninu! María stóra systir reyndi að fá honum annað að gera í von um að hann hætti þessu brölti og rétti honum bangsann Kára. Ekki vildi hins vegar betur til en svo að Huga fannst sjálfsagt mál að Kára langaði líka að sulla í vatninu og dýfði honum því beinustu leið ofan í. Skömmu eftir það tók bátsferðin enda!!!
María alsæl úti í náttúrunni.
Hugi rauk strax af stað í einhverja landkönnun.
Við skötuhjúin smelltum nokkrum myndum af okkur sjálfum. Takið eftir landkönnuðinum í baksýn!
Einar er greinilega ekki alveg að fatta hvernig þetta virkar því hann horfir beint á skjáinn en ekki beint í linsuna!!!
Ekki eru mörg ár síðan amma hneykslaðist (með réttu!) á upplýsta svíninu sem bróðir hennar í næsta bústað hafði komið fyrir á sinni landareign og hét því að aldrei skyldi hún skreyta sína lóð með öðru en punti frá náttúrunnar hendi. En viti menn, nú er ekki þverfótað fyrir dvergum og gosbrunnum í sumarbústaðalandinu!
María og Hugi voru æsispennt að sulla svolítið í þessum plasttjörnum ...
... Hugi var þó öllu æstari og höfðu foreldrarnir og amman það reglulega á orði að sennilega yrði ekki langt að bíða þess að hann steyptist út í ...
... það reyndist rétt mat!!!
Elsku kallinn fór aðeins of langt og stakkst á höfuðið beint ofan í tjörnina!
Hann var að sjálfsögðu drifinn beint inn í hús og fötin sett á ofn. Það reyndist ekki ein einasta flík nothæf, allt hafði blotnað á þessari stuttu sundferð!
Hugi bar sig þó karlmannlega þrátt fyrir allt ...
... líka þegar hann fékk lánaðan bleikan bol af stóru systur!
Amma og María kíkja út yfir landið!
Hugi lét smá baðferð þó ekki stöðva sig frá frekari útivist og fékk lánaða ullarpeysu af mömmu sinni svo hann gæti kíkt örlítið út á pallinn!
Amma og María fundu spóahreiður með fjórum eggjum.
Allt upp fullt af dvergum, líka inni í sumarbústaðnum. Hér bregður María sér í gervi eins.
Við hlökkum mikið til að kíkja fljótlega aftur í bústaðinn og vonum að við verðum þá að mestu laus við óvæntar sundferðir og önnur vandræði!