Barnastarf
er með tvennum hætti hjá okkur.
Leikskólabörn
úr Krílakoti á Kópaskeri koma
í heimsókn einu sinni í mánuði.
Lesið er úr bókum, litaðar myndir, eldri
borgarar hafa komið og sagt okkur sögur frá
því þau voru ung. Í desember er
gamla jólatréð á byggðasafninu
dregið fram og við syngjum jólasöngva.
Eldri
börn í Kópaskersdeild Öxarfjarðarskóla
koma til okkar tvisvar í viku yfir veturinn í
safnakennslu. Við förum yfir hvernig bókum
er raðað upp í safninu, hvernig bækur
eru skráðar og margt fleira.
Önnur
börn á svæðinu koma einnig í
heimsókn til okkar, en það er ekki eins skipulagt.
E
|