|
600g laukur
2 hvítlauksrif
3msk olía
Afhýðið laukinn og skerið í þunna hringi og steikið þar til hann er orðinn gulbrúnn
2msk tómatmauk
Bætið tómatmauki og tilheyrandi kryddi saman við, ásamt vatni og koníaki. Látið súpuna sjóða við vægan hita (30 mín).
hvítlauksolía
8 sneiðar snittubrauð
80g emmentaler ostur eða brauðostur
Smyrjið brauðsneiðarnar með hvítlauksolíunni og setjið ost ofan á. Setjið brauðið í 200 gráðu heitan ofn og glóðið uns osturinn bráðnar.
Setjið 2 sneiðar af brauði ofan í hvern disk áður en súpan er borin fram.