SAMANTEKT
Gaiakenningin og goðsagan um móður jörð hafa meiri
dýpt þegar staldrað er við og skyggnst að baki
hugmyndunum tveimur. Þær eru ekki samheiti, því
Jörð er líkt á ólíkan hátt
við lífveru og við móður. Myndhverfing og póstmódernismi
eru lykilhugtök ritgerðarinnar. Póstmódernisminn
gerir okkur kleift að líta á hvert orð sem hyldýpi
af merkingarlegum blæbrigðum sem aðeins er hægt að
ákvarða út frá samhengi hverju sinni, og með
hjálp myndhverfinga gerum við okkur jafnframt grein fyrir því
að sú merking sem um ræðir hverju sinni er aðeins
yfirfærð að hluta til yfir á næsta hugtak. Óneitanlega
lítum við því tengslin milli Gaiahugmyndar-innar
og goðsögunnar öðrum augum en þegar gengið
er út frá því sem sjálfgefnu að hvert
orð innihaldi aðeins eina merkingu og að sú merking
sé yfirfærð í heilu lagi upp á næsta
hugtak. Það sem við sitjum uppi með er Jarðarhugtak
sem er ólíkt milli hugmyndanna tveggja. Þar að
auki á lífveruhugtakið fátt skylt með því
móðurhugtaki sem yfirfært er á þessi annars
ólíku Jarðarhugtök. Þessi gerólíka
niðurstaða er afsprengi þeirrar djúpu gjár
sem liggur á milli módernískrar trúar á
mátt tungumálsins og póstmódernismans er beinir
sjónum okkar að skilningnum handan og milli orðanna.
|