Óbærilegur léttleiki tilverunnar
Milan Kundera
(bls.7)
Afturkoman eilífa er dularfull hugmynd, og með henni kom
Nietzche ýmsum heimspekingum í bobba: að láta
sér detta í hug að dag einn mun allt endurtaka sig eins
og við upplifðum það, og að sú endurtekning
muni alla tíð endurtaka sig! Hvað merkir þessi
stórskrýtna goðsögn?
Neikvætt séð
þýðir goðsögnin um afturkomuna eilífu
að lífið, sem hverfur í eitt skipti fyrir öll
og ekki kemur aftur, sé líkast skugga, vegi ekkert, sé
fyrirfram dautt, og að það skipti engu máli hversu
hörmulegt, fagurt eða glæsilegt það hafi verið,
því hvorki hörmung þess, fegurð né glæsileiki
hafa neina merkingu. Það tekur því ekki að
minnast á það, ekki frekar en stríð milli tveggja
afrískra konungsríkja á fjórtándu öld,
sem engin áhrif hafði á gang heimsins, jafnvel þó
þrjú hundruð þúsund svertingjar hafi látið
þar lífið á ósegjanlega kvalarfullan hátt.
En breytir það einhverju
um stríðið milli afrísku konungsríkjanna á
fjórtándu öld, ef það endurtekur sig ótal
sinnum í afturkomunni eilífu?
Já, vissulega: það
breytist í vegg sem rís til að standa um alla eilífð,
og heimska þess verður ekki aftur tekin.
Ef franska byltingin endurtæki
sig í sífellu, yrðu franskir sagnfræðingar
líklegast ekki eins hróðugir af Robespierre og þeir
eru nú. En þar sem þeir fást við eitthvað
sem ekki kemur aftur, verður þetta blóðuga tímabil
aðeins að orðum, kenningum, umræðum, það
verður léttara en dúnn, vekur engan ótta.
Reginmunur er á þeim Robespierre sem aðeins birtist einu
sinni í sögunni og þeim Robespierre sem eilíflega
kæmi aftur til að hálshöggva Frakka.
(Íslenski kiljuklúbburinn, 1990)
|